Sameining Kaldrananeshrepps & Árneshrepps

Niðurstöður íbúakosninga 
Sveitarstjórnir Árneshrepps og Kaldrananeshrepps  samþykktu að láta fara fram íbúakosningu um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna dagana 14.-28. mars 2026.

Niðurstaða kosninganna var sú að sameining var samþykkt í báðum sveitarfélögum.

Sameiningarviðræður

Sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps tóku ákvörðun um að efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 dagana 14.-28. mars 2026.

Hægt er að sjá fyrirhögun kosninganna hér.

Álit samstarfsnefndar um sameiningu

Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna skilaði áliti sínu til sveitarstjórnanna, en samkvæmt sveitastjórnarlögum eiga sveitarstjórnirnar að fjalla um álitið án atkvæðagreiðslu. 
Álitið er byggt á vinnu verkefnisstjórnar um óformlegar viðræður sveitarfélaganna sem meðal annars safnaði upplýsingum um starfsemi sveitarfélaganna til að greina stöðu þeirra og stóð fyrir íbúafundum í sveitarfélögunum í desember 2025.

Framtíðarsýn

Í erindi sínu til sveitarstjórnanna leggur samstarfsnefnd áherslu á að sameiningin, ef af henni verður, fari fram á jafnræðisgrundvelli. 
Einnig setur nefndin fram hugmyndir um framtíðarsýn fyrir sameinað sveitarfélag sem fela í sér að íbúum verði tryggð nærþjónusta eftir fremsta megni með stafrænum hætti í íbúagátt, að skipuð verði heimastjórn fyrir Árneshrepp til að tryggja áhrif íbúa á nærumhverfi sitt og að skólasel verði starfrækt í Finnbogastaðaskóla. Jafnfram fela hugmyndirnar í sér að skrifstofurými verði til staðar fyrir heimastjórn í Árneshreppi, að þar verði viðvera fulltrúa sveitarfélagsins eftir því sem við á og öllum íbúum verði gert kleift að taka virkan þátt í málefnum sveitarfélagsins í sveitarstjórn og nefndum með aðstoð fjarfundarbúnaðar.

Íbúafundur 9. mars 2026

Hér má nálgast glærur & upptöku frá íbúafundi Kaldrananeshrepps sem haldinn var 9. mars 2026

Fundargerðir samstarfsnefndar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps 

Hér er hægt að skoða og sækja fundargerðir samstarfsnefndar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps
Dagsetning fundar
Sækja eða lesa fundargerð
1. fundur samstarfsnefndar 13. febrúar 2026 Opna eða sækja skjal
2. fundur samstarfsnefndar 20. febrúar 2026 Opna eða sækja skjal
3. fundur samstarfsnefndar 5. mars 2026 Opna eða sækja skjal

Fundargerðir verkefnisstjórnar um óformlegar sameiningarviðræður Árneshrepps og Kaldrananeshrepps 

Hér er hægt að skoða og sækja fundargerðir verkefnisstjórnar um óformlegar sameiningarviðræður Árneshrepps og Kaldrananeshrepps
Dagsetning fundar
Sækja eða lesa fundargerð
1. fundur verkefnisstjórnar 24. október 2025 Opna eða sækja skjal
2. fundur verkefnisstjórnar 31. október 2025 Opna eða sækja skjal
3. fundur verkefnisstjórnar 7. nóvember 2025 Opna eða sækja skjal
4. fundur verkefnisstjórnar 21. nóvember 2025 Opna eða sækja skjal
5. fundur verkefnisstjórnar 28. nóvember 2025 Opna eða sækja skjal
6. fundur verkefnisstjórnar 5. desember 2025 Opna eða sækja skjal
7. fundur verkefnisstjórnar 12. janúar 2026 Opna eða sækja skjal

 Minnisblað fyrir fund með innviðaráðherra  Opna eða sækja skjal
 Glærur fyrir fund með innviðaráðherra  Opna eða sækja skjal
SAMEININGARVIÐRÆÐUR

Dreifibréf vegna íbúakosningar

Sveitarstjórnir Árneshrepps og Kaldrananeshrepps hafa samþykkt að láta fara fram íbúakosningu um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna dagana 14. - 28. mars 2026.

Dreifibréf á íslensku & ensku

Hægt er að nálgast dreifibréf vegna íbúakosningar á íslensku hér.

The postal ballot for the election is in English here.

Dreifibréf á pólsku

Można uzyskać ulotkę dotyczącą wyborów lokalnych po polsku tutaj.

Dreifibréf á tékknesku

Dopis o komunálních volbách lze zde získat v češtině.

Leit