Skipulag og framkvæmdir

Kaldrananeshreppur

Skipulag og framkvæmdir 


Skipulagsmál heyra undir byggingar-, skipulags- og umhverfisnefnd. Nefndin fer með skipulagsmál í umboði sveitarstjórnar samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010 m.s.br., skipulagsreglugerð nr. 90/2013 m.s.br. og lögum um umhverfismat áætlana nr. 105-2006 m.s.br.



Umsókn um byggingarleyfi

Sótt er um byggingarleyfi á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Byggingarfulltrúi
Grettir Örn Ásmundsson er byggingafulltrúi Kaldrananeshrepps.
Sími: 451 3517
Netfang: byggingafulltrui@strandabyggd.is
Póstfang: Höfðagata 3, 510 Hólmavík

Byggingarfulltrúi er með starfsstöð á skrifstofu Strandabyggðar, en með viðveru á skrifstofu Dalabyggðar fyrsta og þriðja föstudag í mánuði og á skrifstofu Reykhólahrepps fyrsta fimmtudag í mánuði.

Embætti byggingarfulltrúa er starfrækt samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og reglugerðum þeim tengdum.


Skipulagsfulltrúi

Hlynur T. Torfason er skipulagsfulltrúi Kaldrananeshrepps.
Sími: 430 4700
Netfang: skipulag@dalir.is
Póstfang: Miðbraut 11, 370 Búðardalur

Viðvera skipulagsfulltrúa í Strandabyggð er 2. og 4. miðvikudag í mánuði.
Óheimilt er, samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta því, burðarkerfi þess, formi, svipmóti eða notkun þess eða gera önnur mannvirki, nema að fengnu leyfi viðkomandi sveitarstjórnar.
Framkvæmdir skulu vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag.
Byggingarleyfi felur í sér samþykkt aðaluppdrátta og framkvæmdaáforma eða samþykkt á breyttri notkun húss.
Auk útgáfu byggingarleyfa annast embættið yfirferð og samþykkt séruppdrátta, úttektir, samþykkt á byggingarstjórum, skráningu iðnmeistara á verk, fasteignaskráningu, yfirferð eignaskiptayfirlýsinga og gefur umsagnir vegna starfs- og veitingaleyfa. Þá varðveitir byggingarfulltrúi uppdrætti af húsum í sveitarfélaginu og geta allir fengið ljósrit af þeim gegn hóflegu gjaldi. 
Byggingarfulltrúi og skipulagsfulltrúar veita fúslega faglegar ráðleggingar bæði í viðtals- og símatímum.
Byggingarfulltrúi Skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 Skipulagsreglugerð nr. 400/1998 Byggingareglugerð nr. 441/1998 Lög nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana Lög nr. 106/2006, um mat á umhverfisáhrifum Umhverfisráðuneytið Skipulagsstofnun(Velja Skipulagsvefsjá fyrir Aðalskipulag og Deiliskipulag

Enn eru ekki komin eyðublöð fyrir Kaldrananeshrepp, en annars væru þau hér:  https://dalir.is/thjonusta-og-starfsemi/byggingar/eydublod/
Leit