Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps
Fjögur sveitarfélög standa að Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps sem stofnuð var árið 2011 en það eru Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð.
Þeir málaflokkar sem félagsþjónustan sinnir er barnavernd, félagsleg ráðgjöf, félagsleg heimaþjónusta, fjárhagsaðstoð, málefni aldraðra og málefni fatlaðra.
Félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps er Hlíf Hrólfsdóttir.
Netfang: felagsmalastjori@strandabyggd.is
Kennitala: 700911-1360

Viðvera félagsþjónustunnar í Kaldrananeshreppi
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps er með viðveru í Kaldrananeshreppi annan fimmtudag í hverjum mánuði frá 10.00 - 14.00 á skrifstofu sveitarfélagsins í samkomuhúsinu Baldri.
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps er með viðveru í Kaldrananeshreppi annan fimmtudag í hverjum mánuði frá 10.00 - 14.00 á skrifstofu sveitarfélagsins í samkomuhúsinu Baldri.
Opnunartími skrifstofu
Strandabyggð
Skrifstofa félagsmálastjóra er á skrifstofu sveitarfélagsins, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Opnunartímar |
|
---|---|
Mánudagar | 08:00 - 15:00 |
Miðvikudagar | 08:00 - 15:00 |
Fimmtudagar | 08:00 - 15:00 |
Föstudagar | 08:00 - 15:00 |
Reykhólar
Skrifstofa sveitarfélagsins, Maríutröð 5
Opnunartímar | |
---|---|
Þriðjudagar | 10:00 - 15:00 |