Kaldrananeshreppur óskar eftir framboðum til fulltrúa verkefnaráðs fyrir brothættar byggðir
Kaldrananeshreppur tekur þátt í verkefninu Brothættar byggðir í samstarfi við Byggðastofnun og leitum við nú að öflugum einstaklingum sem hafa áhuga á að taka þátt í mótun framtíðar sveitarfélagsins.
Við leitum að áhugasömu fólki sem vill taka þátt í verkefnaráði brothætta byggða – vettvangi þar sem skapandi hugsun og samvinna leiða til nýrra tækifæra.
Hlutverk verkefnaráðsins:
- Setja fram framtíðarsýn og markmið verkefnisins
- Taka þátt í ákvarðanatöku og forgangsröðun aðgerða
- Fylgja eftir framgangi verkefnisins í samstarfi við sveitarfélagið og Byggðastofnun
- Vera rödd samfélagsins og hvetja til þátttöku
Við leitumst eftir að fá fjölbreyttan hóp í ráðið – fólk á öllum aldri, með ólíkan bakgrunn, úr ólíkum áttum eða bara brennandi áhuga á framtíðinni – við viljum heyra í þér!
Hvernig sæki ég um?
Sendu stuttan tölvupóst þar sem þú kynnir þig og segir frá áhuga þínum á þátttöku. Netfang: drangsnes@drangsnes.is Umsóknarfrestur: kl. 18:00 mánudaginn 11. ágúst.
Taktu þátt – mótaðu framtíðina með okkur!

