Uppbygging á Vitavegi, Drangsnesi

Uppbygging á Vitavegi, Drangsnesi

07.10.2024

Kæru íbúar Kaldrananeshrepps og aðrir,

Nú standa fyrir framkvæmdir á Vitavegi, Drangsnesi og er meginforsenda þeirra  að nýta betur innviði íbúðarsvæða í þéttbýlinu. 

Skortur á íbúðarhúsnæði hefur verið viðvarandi á Drangsnesi og leitaði sveitarstjórn leiða til að bæta þar úr í kjölfar íbúafundar sem haldinn var 17. nóvember 2021. 

Á 13. sveitarstjórnarfundi Kaldrananeshrepps sem haldinn var 4. júní 2023 lágu fyrir drög að nýju deiliskipulagi á Vitavegi. Ákveðið var að fullvinna breytingatillögu við deiliskipulag að Vitavegi á Drangsnesi og er vinnslutillagan nú í kynningu hjá Skipulagsgátt.

Sjá vinnslutillögu hér.

Vitavegur er nýjasta gatan á Drangsnesi og hafa við hana verið skipulagðar fjórar lóðir, allar sunnan götunnar. Á umræddri breytingartillögu er gert ráð fyrir fimm lóðum til viðbótar, norðan við götuna og er nú unnið að því að jafna jarðveginn fyrir komandi lóðir. 

Framtíðarhorfur sveitarstjórnar fyrir umræddar lóðir eru að festa kaup á húsum sem eru afhent tilbúin og myndu henta til útleigu. Sveitarstjórn gæti því brugðist við þeirri eftirspurn sem er eftir leiguhúsnæði og stuðla að uppbyggingu á Drangsnesi. 

Leit