Fréttir & tilkynningar

Umhyggjudagurinn 2023

Umhyggjudagurinn 2023

23.08.2023

Laugardaginn 26. ágúst verður Umhyggjudagurinn haldinn hátíðlegur í Sundlauginni á Drangsnesi. 

Frítt verður fyrir alla í sund á milli 14.00 til 16.00

Glaðningur verður fyrir alla krakka sem mæta í sund á meðan brigðir endast. 

Hlökkum til að sjá ykkur! 

Hvað er Umhyggja?

Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Umhyggja býður m.a. upp á endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu og lögfræðiráðgjöf fyrir foreldra, niðurgreidd námskeið fyrir systkini, fjárstyrki, orlofshús, aðstoð við réttindabaráttu ásamt ráðgjöf til fjölskyldna og fagaðila.

Umhyggja reiðir sig alfarið á styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum í samfélaginu. Með því að styrkja Umhyggju gerir þú félaginu kleift að styðja við fjölskyldur langveikra barna.

Þú getur gerst Umhyggjusamur einstaklingur með mánaðarlegum framlögum til Umhyggju með því að fara inn á umhyggja.is.

Leit