Umferðaröryggi á Drangsnesi

Umferðaröryggi á Drangsnesi

31.01.2025

Kaldrananeshreppur hvetur ökumenn til þess að virða hámarkshraða á meðan ekið er um Drangsnes og leggja þar með sitt af mörkum til að auka öryggi barna og annarra gangandi vegfaranda. 

Hámarkshraði á Drangsnesi er 30km./klst. og margfaldast líkur á alvarlegum áverkum ef ekið er hraðar. 

Hugarfar og vilji ökumanna er það sem skiptir mestu máli til að árangur náist í að tryggja öryggi barnanna okkar og annarra vegfarenda í umferðinni.

Leit