Óbyggðanefnd hefur framlengt kröfulýsingarfrest landeigenda á svæði 12 (eyjar og sker) til 2. desember 2024. Það er gert í ljósi upplýsinga frá lögmönnum ríkisins um að von sé á endurskoðuðum kröfum ríkisins um mánaðamótin ágúst–september 2024.
Tilkynning verður send út um endurskoðaða kröfugerð þegar hún liggur fyrir, auk þess sem hún verður birt á vefsíðu óbyggðanefndar. Á vefsíðunni er einnig að finna almennar upplýsingar um málsmeðferðina.

