Talning atkvæða í íbúakosningu laugardaginn 28. mars 2026

Talning atkvæða í íbúakosningu laugardaginn 28. mars 2026

20.03.2026

Talning atkvæða í íbúa­kosn­ingu um samein­ingu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps skal fara fram fyrir opnum dyrum svo að almenn­ingi gefist kostur á að vera viðstaddur eftir því sem húsrúm leyfir.

Viðstöddum ber að hlíta fyrirmælum kjörstjórnar og starfsfólks hennar á talningarstað. Heimilt er að vísa hverjum þeim af talningarstað sem veldur röskun eða truflun á flokkun eða talningu atkvæða.

Talning atkvæða mun fara fram þegar kosningu lýkur laugardaginn 28. mars nk. klukkan 16.00.

Talið verður í Grunnskóla Drangsness í Kaldrananeshreppi & í Félagsheimilinu Árnesi í Árneshreppi. 

  

Sameiginleg kjörstjórn Árneshrepps og Kaldrananeshrepps  

Leit