Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050

Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050

27.05.2024

Skipulagslýsing og opnir fundir

Hafin er vinna að tillögu að svæðisskipulagi fyrir Vestfirði með aðild allra sveitarfélaganna átta á Vestfjörðum.

Svæðisskipulag mun marka meginstefnu og framtíðarsýn í sameiginlegum hagsmunamálum sveitarfélaganna á Vestfjörðum. Það á að draga fram þætti sem efla samfélagið á Vestfjörðum með frumkvæði, þekkingu og samvinnu að leiðarljósi.

Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða hefur hafið kynningu á skipulagslýsingu sem er verkefnislýsing fyrir vinnslu Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050, sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Verkefnislýsingin gerir grein fyrir tildrögum og forsendum skipulagsvinnunar, viðfangsefnum skipulagstillögu og umhverfismati hennar ásamt áföngum skipulagsvinnunar og samráði.

Skipulagslýsingin er aðgengileg í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar hér.

Opið er fyrir athugasemdir um skipulagslýsinguna til 26. júní 2024 og er hægt að koma umsögnum á framfæri í skipulagsgáttinni.

Jafnframt er vakin athygli á opnum íbúafundum í þessari viku þar sem þátttakendum gefst kostur á að koma að mótun svæðisskipulags. 
Íbúafundirnir verða milli kl. 16:30 og 18:30 á eftirtöldum stöðum:

                         27.  maí - Félagsheimilinu á Patreksfirði 

                        29. maí - Edinborgarhúsinu á Ísafirði 

                        30. maí - Félagsheimilinu á Hólmavík 

                        30. maí - Reykhólaskóla á Reykhólum


Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða 

Leit