Stofnun Hollvinafélags Gvendarlaugar hins góða í Bjarnarfirði

Stofnun Hollvinafélags Gvendarlaugar hins góða í Bjarnarfirði

16.07.2006

Sunnudaginn 20. júlí 2008 verður formlega stofnað Hollvinafélag Gvendarlaugar hins góða í Bjarnarfirði á Ströndum í minningu þeirra framsýnu eljumanna sem fyrir réttum 60 árum tókust á hendur það þrekvirki að byggja í sjálfboðavinnu sundlaug fyrir eigin fjármuni í þessu fámenna byggðarlagi.

Fyrsta verkefni félagsins verður að safna fjármunum svo unnt verði að ráðast í gerð vandaðrar áætlunar um nauðsynlegar framkvæmdir til viðhalds og endurbóta á lauginni. Sú áætlun yrði síðan grundvöllur frekari fjáröflunar úr opinberum sjóðum. Nú þegar hefur Sundfélagið Grettir hlotið styrk upp á 300 þúsund krónur frá UMFÍ til þess að bæta umhverfi sundlaugarinnar.

Leit