Starfsmaður óskast í starf við félagslega liðveislu á Drangsnesi. Markmið liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun einstaklingsins og efla sjálfstæði í félagslegum samskiptum. Bílpróf skilyrði.
Laun eru samkvæmt taxta Verk-Vest.
Umsóknir sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

