Kaldrananeshreppur óskar eftir starfskrafti í Sundlaugina á Drangsnesi í 50% starf frá 1. september 2024.
Unnið er:
Vetraropnun
- Á þriðjudögum, miðvikudögum & föstudögum frá 14.30 til 19.00
- Á laugardögum og sunnudögum frá 12.30 til 18.00
Sumaropnun
- Frá 10.30 til 19.00 alla daga vikunnar eða eftir samkomulagi.
Sumartími hefst í byrjun júní og er til lok ágúst
Helstu verkefni & ábyrgð:
- Öryggisgæsla og eftirlit.
- Afgreiðsla og aðstoð við viðskiptavini.
- Eftirfylgni með umgengisreglum.
- Eftirlit með gæðum sundlaugarvatns.
- Umsjón með hreinlæti í og við laug.
Hæfniskröfur:
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
Laun fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til kl. 20.00, miðvikudaginn 24. júlí 2024.
Umsóknum um starfið þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Finnur Ólafsson, oddviti í síma 775-3377.

