Eins og kunnugt er samþykktu íbúar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningum sem fram fóru dagana 14. -28. mars sl. Í kjölfarið skipuðu sveitarstjórnir sveitarfélaganna stjórn til undirbúnings að gildistöku sameiningarinnar.
Undirbúningsstjórnin hefur samþykkt tillögu að fyrirkomulagi gildistöku og sent innviðaráðuneyti til staðfestingar. Samkvæmt tillögu undirbúningsstjórnar mun sameiningin taka gildi þann 31. maí 2026 í kjölfar kosninga til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi þann 16. maí nk. Samhliða sveitarstjórnarkosningunum verða kosnir fulltrúar í heimastjórn fyrir svæðið sem tilheyrir Árneshreppi.
Ákveðin óvissa er um framhaldið þar sem framkvæmd íbúakosninga í Árneshreppi hefur verið kærð til innviðaráðuneytis. Tilkynningar munu verða birtar á heimasíðum sveitarfélaganna þegar úrskurður ráðuneytisins liggur fyrir.
Framboðsfrestur í sveitarstjórnarkosningum
Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórnarkosninga er til kl. 12.00 í dag, föstudaginn 10. apríl sbr. reglugerð um framboð og meðmæli við sveitarstjórnarkosningar nr. 254/2024.
Kjörstjórn Kaldrananeshrepps tekur við framboðum rafrænt á netfangið drangsnes@drangsnes.is.

