Sorphirða & flokkun

Sorphirða & flokkun

11.04.2024

Sorpsamlag Strandasýslu


Kæru Íbúar Kaldrananeshrepps, 

Við viljum byrja á að þakka ykkur fyrir hversu vel það hefur verið flokkað hér á okkar svæði, en gegnum árin hefur flokkun og umgengni í kringum flokkunargáma og stöð verið til fyrirmyndar. Það má hins vegar alltaf gera betur og viljum við benda á að passa sérstaklega vel að batterí, rafhlöður og spilliefni fari ekki með í pappa og plastgáma.

Plastið og pappinn hjá okkur eru þjöppuð í sérstakri pressu og getur skapast veruleg hætta á sprengingu ef aðskotahlutir eins og rafhlöður og önnur spilliefni eru þar með. Við bendum á að auðvitað er tekið við spilliefnum og rafhlöðum á söfnunarstöð. Við minnum einnig á að einungis eiga að fara umbúðir í plast og pappagámana og passa þarf að ekki séu önnur efni með þeim.

Þá er einnig velkomið að hafa samband við okkur á sorpsamlag@holmavik.is ef einhver vafi er um hvernig á að flokka en leiðbeiningar eru einnig aðgengilegar á drangsnes.is undir - Stjórnkerfið og - Sorpsamlag Strandasýslu.

Nýjungar í tækjabúnaði
Það gleður okkur að segja frá þeim nýjungum í tækjabúnaði sem Sorpsamlagið hefur tekið til notkunar þar má nefna stóra pressu þar sem að við pressum pappa og plast sem skilar sér í að við getum flutt fimmfalt meira magn í hverri ferð til Reykjavíkur en við gátum áður, í því felst mikil hagræðing og tekjuaukning fyrir hverja ferð. Þá höfum við einnig verið með til prufu jarðgerðarvél fyrir heimili og hefur hún reynst mjög vel og munum við kynna hana vel á vefnum strandabyggd.is.

Grenndargámar
Grenndargámar verða áfram á Skeiði við húsnæði Sorpsamlags Strandasýslu og þar verður móttaka fyrir eftirfarandi:

Aðrir grendargámar á vegum Sorpsamlags Strandasýslu eru í Bitrufirði, Drangsnesi, Bjarnarfirði, Norðurfirði, og Djúpuvík. En ekki er tekið við öllum flokkum á þeim stöðum.

  • Pappi
  • Plast 
  • Gler umbúðir 
  • Málm umbúðir 
  • Raftæki
  • Garðaúrgangur 
  • Timbur 
  • Járn
  • Grófan úrgang,  byggingarefni 
  • Spilliefni 


ENGLISH

Dear inhabitants of Strandabyggð. We are now facing some changes regarding waste management. The full English version of the details of these changes is available on strandabyggd.is > stofnanir > Sorpsamlag Strandasýslu. Please have a look and take some time to answer the online survey about your preferences regarding waste collection.

Sorphirðudagatal 2024 má nálgast hér

Leiðbeiningar um flokkun úrgangas má nálgast hér

Leit