Sólmyrkvagleraugu fyrir íbúa Kaldrananeshrepps

Sólmyrkvagleraugu fyrir íbúa Kaldrananeshrepps

15.07.2026

Kaldrananeshreppur tók þátt í sameig­in­legri pöntun á sólmyrkv­agler­augum fyrir íbúa á Vest­fjörðum og gefur öllum íbúum hreppsins sólmyrkvagleraugu.

Nálgast má gleraugun í Sundlauginni á Drangsnesi á opnunartíma sundlaugarinnar þ.e. alla daga vikunnar frá 11.00 - 18.00. 

Gríðarlega mikilvægt er að nota öryggisvottuð sólmyrkvagleraugu þegar horft er á sólmyrkva. Þannig er hægt að koma í veg fyrir augnskaða. Á þeim stutta tíma sem tunglið hylur sólina að fullu í almyrkvanum er hins vegar óhætt að horfa án gleraugna. Um leið og fyrstu geislar sólar sjást aftur þarf að setja gleraugun strax upp.

Almyrkvinn 12. ágúst 2026 varir lengst í 2m 13s við Látrabjarg í Vesturbyggð á Vestfjörðum.
Er það lengsti mögulegi almyrkvi á Íslandi. Ef vel viðrar eru því miklar líkur á að Vesturbyggð verði vinsælasti áfangastaður almyrkvaunnenda sem leggja leið sína á Vestfirði. Þetta er fyrsti almyrkvinn á sólu á Vestfjörðum síðan 30. mars 1131.  

Leit