Skólastjóri óskast við Grunnskólann á Drangsnesi

Skólastjóri óskast við Grunnskólann á Drangsnesi

02.07.2026

Við leitum að metnaðarfullum, framsýnum og öflugum leiðtoga til að gegna starfi skólastjóra við Grunnskólann á Drangsnesi.
Um er að ræða 100% starf frá 4. ágúst 2026.


Grunnskólinn á Drangsnesi er fámennur skóli þar sem margir árgangar eru í samkennslu og áhersla lögð á einstaklingsmiðað nám. Skólinn leggur áherslu á gott samstarf við grenndarsamfélagið og nágrannaskólana auk útikennslu, ræktun og sköpun.

Í Grunnskólanum á Drangsnesi verða um 10 nemendur næsta skólaár á aldrinum 9 – 15 ára, að auki er verið að stofna samrekinn leikskóla undir sama þaki þar sem 5 - 7 nemendur verða næsta skólaár.
Tveir kennarar auk skólastjóra sinna kennslu í grunnskóla. Tveir starfsmenn eru í leikskólanum, deildarstjóri og leikskólakennari. 

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

- Veita skólanum faglega forystu
- Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
- Stuðla að góðu samstarfi starfsfólks, nemenda, foreldra og nærsamfélags
- Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
- Stýra og þróa skólastarf í samræmi við lög, reglugerðir og aðalnámskrár
- Efla jákvætt, öruggt og uppbyggilegt skólasamfélag


 Menntunar- og hæfniskröfur:

- Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla
- Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan,     fjölbreyttan og skapandi hátt
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2026.

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Hildur Aradóttir, skrifstofustjóri í síma 451-3277 en einnig má senda fyrirspurnir á netfangið drangsnes@drangsnes.is  

 Umsóknum skal skilað á vef atvinnuleitarmiðlarins Alfreð hér

Kaldrananeshreppur er eitt af þremur sveitarfélögum á Ströndum og er þéttbýlisstaður þess þorpið Drangsnes, nokkur byggð er einnig í Bjarnarfirði. Það búa um 75 manns á Drangsnesi og er aðal atvinnugrein sveitarfélagsins fiskvinnsla og sjósókn. Á Drangsnesi er sundlaug og líkamsrækt, hótel og matsölustaður, verslun og bensínafgreiðsla, samkomuhús og kapella, björgunarsveit og slökkvilið. Í Bjarnarfirði er rekið hótelið Laugarhóll og sundlaug. Í Kaldrananeshreppi má finna fjölmargar náttúruperlur og má þar nefna Grímsey í Steingrímsfirði, Gvendarlaug hins góða í Bjarnarfirði og Kerlinguna.

Hólmavík er næsti þjónustukjarni og þar má finna ýmsa þjónustu s.s. þjónustuútibú Vegagerðarinnar, Orkubú Vestfjarða, Vínbúð, Sparisjóð Strandamanna, heilsugæslu og lyfsölu.

Leit