Samningur um umdæmisráð Landsbyggða ásamt viðauka

Samningur um umdæmisráð Landsbyggða ásamt viðauka

22.05.2023

Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps samþykkti á 4. fundi sínum þann 19. september að sveitarfélagið verði aðili að sameiginlegu umdæmisráði barnaverndar á landsbyggðinni. Með þessu fyrirkomulagi fela aðildarsveitarfélög umdæmisráðinu öll þau hlutverk sem því eru fengin í barnaverndarlögum og eftir atvikum öðrum lögum.

Þann 13. júní 2021 samþykkti Alþingi breytingar á barnaverndarlögum sem fela í sér grundvallarbreytingar á uppbyggingu barnaverndar innan sveitarfélaga. Barnaverndarnefndir í núverandi mynd eru lagðar niður og meginábyrgð daglegra verkefna barnaverndar falin barnaverndarþjónustu. Í staðinn verður komið á fót umdæmisráðum barnaverndar, sem fara með úrskurðarvald í ákveðnum barnaverndarmálum þar sem mest reynir á faglega þekkingu.  

Sækja eða opna samning hér

Leit