Opinn íbúafundur
Vegagerðin, í samstarfi við Vestfjarðastofu, býður til opins íbúafundar í Félagsheimilinu á Patreksfirði þriðjudaginn 18. mars klukkan 17:30. Fulltrúar frá Vegagerðinni munu fjalla um ýmis samgöngumál sem tengjast svæðinu og boðið verður upp á spurningar og umræður.
Markmiðið með fundinum er að veita íbúum upplýsingar um yfirstandandandi og fyrirhugaðar framkvæmdir, fá innsýn í starfsemi Vegagerðarinnar á svæðinu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Til að tryggja að sem flestir geti fylgst með verður fundinum einnig streymt á netinu, auk þess sem hægt verður að senda inn spurningar í gegnum Slido.com.
Allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.

