Plokkdagur í Kaldrananeshreppi

Plokkdagur í Kaldrananeshreppi

24.05.2024

Sunnudaginn 26. maí

Sunnudaginn 26. maí nk. verður hin árlega fjöruhreinsun í Kaldrananeshreppi og að þessu sinni verður Nesströnd hreinsuð. 
Mæting þangað er kl. 14.00

Að auki verður Drangsnesplokk kl. 15.00 og er mæting hjá Fiskvinnslunni Drangi ehf. Þar verður sjálfboðaliðum skipt niður á svæði með það að markmiði að týna það rusl sem að er farið að safnast upp í þorpinu. 

Grill fyrir þátttakendur
Eftir plokkið er öllum plokkurum boðið í grillaðar pylsur & drykki í Samkomuhúsinu Baldri í boði Kaldrananeshrepps. 

Öll eru velkomin & vonumst við til þess að sjá sem flesta! 

Leit