Leikskóli á Drangsnesi opnaður á ný!

Leikskóli á Drangsnesi opnaður á ný!

19.10.2026

Eftir sjö ára hlé hefur leikskóli á Drangsnesi opnað á ný.

Leikskólinn er staðsettur í húsnæði Grunnskólans á Drangsnesi, að Aðalbraut 10. Þar er ein deild fyrir börn á leikskólaaldri í Kaldrananeshreppi.

Lögð er áhersla á að skapa hlýlegt, öruggt og hvetjandi umhverfi þar sem börn fá tækifæri til að leika sér, læra og þroskast.

Leikskólinn er mikilvægur hluti af skólasamfélaginu á Drangsnesi og leggur áherslu á gott samstarf við fjölskyldur barnanna og nærsamfélagið.
Með enduropnun leikskólans skapast ný tækifæri fyrir börn og fjölskyldur í sveitarfélaginu og eflist enn frekar sú þjónusta sem stendur íbúum til boða.

Hér má sjá myndir af leikskólanum á Drangsnesi: 

Leit