Fréttir & tilkynningar
Íbúum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra
stendur til boða allskonar námskeið og erindi, bæði í persónu og á netinu,
vegna verkefnisins "Leiðir til byggðafestu".
Frekari upplýsingar um
verkefnið og námskeið hér: https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/byggdathroun/leidir-til-byggdafestu
Nú þegar eru komin inn 3 námskeið og fleiri bætast við á næstu dögum.
Í kvöld (24. október kl. 17:00) er Hulda Brynjólfs með erindi og umræður. Hún er bóndi og eigandi
ullarvinnslunnar Uppspuna á Suðurlandi. Hún er einstaklega góð í að miðla sinni
reynslu og þekkingu.
Skráning hér:
https://docs.google.com/forms/d/1MWBgtCn1gEvrAGi-TdApcbnAioQywfzbUm2udLvtKI0/edit
Þann 3. nóvember verður svo Jón Halldórsson frá KVAN með
námskeiðið "Leiðtogafærni í eigin lífi". Námskeiðið fer fram að
Laugarbakka frá 10:00 - 17:00. En þess má geta að svona leiðtoga
þjálfunarnámskeið kostar töluvert fyrir einstaklinga að sækja, en íbúum á þessu
svæði stendur þetta til boða endurgjaldslaust.
Skráning hér:
https://docs.google.com/forms/d/16SiNVPK0yBM373mAL-Ips6rh9OHnW2q8hLdZfhKPB70/edit
Þá eru einnig inni 7 námskeið í heimavinnslu sem tekin
eru á netinu og eru þau opin fram í febrúar.
Skráning hér:
https://docs.google.com/forms/d/1s7cA490Y5UpZRovyTa1f1T3a225drOpjHcMu2kD2D9k/edit