Hundaeigendur eru minntir á að lausaganga hunda á Drangsnesi er bönnuð eins og víðast hvar annars staðar.
Hundar eiga alltaf að vera í taumi utan húss og í umsjón eða fylgd ábyrgs aðila. Sleppi hundur frá eiganda eða umráðamanni, skal viðkomandi tafarlaust gera ráðstafanir til að handsama hann.
Að auki eru hunda- og kattaeigendur minntir á að umrædd dýr á Drangsnesi skulu vera skráð hjá sveitarfélaginu.
Skráningarform má finna hér.
Ábendingar um lausa hunda má benda til skrifstofustjóra í gegnum netfangið drangsnes@drangsnes.is eða í síma 451-3277.

