Lausaganga hunda á Drangsnesi

Lausaganga hunda á Drangsnesi

27.05.2024

Eins og hundar eru nú skemmtilegir þá er ekki raunhæft að fara fram á að allir kunni að umgangast hunda. Vill sveitarstjórn Kaldrananeshrepps minna á að lausaganga hunda er bönnuð á Drangsnesi eins og víðast hvar annars staðar.

Sambúð manna og dýra gengur að miklu leyti út á tillitssemi og umburðarlyndi. Hundaeigendur eru því beðnir um að hafa hundinn sinn í taumi utanhúss. 

Ábendingar um lausa hunda má benda til skrifstofustjóra í gegnum netfangið drangsnes@drangsnes.is eða í síma 451-3277. 

Leit