Laus störf við Grunnskóla Drangsness í Kaldrananeshreppi

Laus störf við Grunnskóla Drangsness í Kaldrananeshreppi

05.06.2023

Við óskum eftir öflugum starfskrafti með kennsluréttindi á grunnskólastigi í 70-80% starfumsjónarkennara frá og með 1. ágúst 2023. Reynsla af skólaþróun og teymisvinnu er kostur.
Laun eru skv. kjarasamningi KÍ og Launanefnd sveitarfélaga.

Grunnskóli Drangsness er fámennur skóli þar sem starfa að jafnaði 10-15 nemendur í tveimur bekkjardeildum. Auk nemenda starfa við skólann tveir kennarar ásamt skólastjóra. Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreytt nám sem byggir á mikilli samvinnu innan skólans sem og við nágrannaskóla auk vinnu með náttúru og nærsamfélag í gegnum útikennslu og reynslunám. Hér gefst skapandi kennurum einstakt tækifæri til þess að móta og þróa skólastarfið í samvinnu við samstarfsfólk og nemendur.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá, stutt greinargerð um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um réttindi viðkomandi umsækjanda. Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2023

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Þórisdóttir skólastjóri í síma 663-5319 eða í gegnum netfangið skoli@drangsnes.is 

Leit