Kjörstaðir og opnunartími vegna íbúakosningar um sameiningu Kaldrananeshrepps & Árneshrepps

Kjörstaðir og opnunartími vegna íbúakosningar um sameiningu Kaldrananeshrepps & Árneshrepps

10.03.2026

Sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps hafa tekið ákvörðun um að efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 dagana 14.-28. mars nk.

Opnunatími kjörstaða í Kaldrananeshreppi verður eftirfarandi: 

Grunnskóli Drangsness
- Laugardaginn 14. mars frá kl. 12:00 til 14:00
- Laugardaginn 21. mars frá kl. 12:00 til 14:00
- Laugardaginn 28. mars frá kl. 10:00 til 16:00.

Skrifstofa Kaldrananeshrepps
Afgreiðsla í þjónustuveri er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 09:00 til 13:00. 

Þeir sem ekki eiga þess kost að mæta á kjörstað geta greitt atkvæði í póstkosningu á tímabilinu 14. til 28. mars.
Atkvæðagreiðsla með pósti fer þannig fram að kjósandi óskar eftir að fá kjörgögn ásamt leiðbeiningum um skil send til sín í pósti eða tölvupósti. Kjósandi þarf svo að koma atkvæði sínu í hendur kjörstjórnar fyrir lokun kjörstaða kl. 16:00 þann 28. mars nk.
Til að óska eftir kjörgögnum þarf að send senda tölvupóst á með nafni og kennitölu á drangsnes@drangsnes.is.  

Nánari upplýsingar um kosningarnar er að finna hér.  

Leit