Kaldrananeshreppur óskar eftir að ráða í tvær stöður hjá leikskóla sveitarfélagsins sem áætlað er að opna á næsta skólaári.

Kaldrananeshreppur óskar eftir að ráða í tvær stöður hjá leikskóla sveitarfélagsins sem áætlað er að opna á næsta skólaári.

02.02.2026

Um er að ræða nýjar stöður innan sveitarfélagsins en leikskóli hefur ekki verið starfræktur hjá Kaldrananeshreppi í sjö ár. Áætlað er að opna leikskóla á ný, haustið 2026 í húsnæði Grunnskóla Drangsness þar sem gert er ráð fyrir 5-7 nemendum fyrsta starfsárið. 

Óskað er eftir að ráða deildarstjóra í 100% starfshlutfall. Leitað er eftir öflugum einstakling sem hefur farsæla reynslu af starfi á leikskóla og með framúrskarandi samskiptahæfileika. 

Unnið yrði undir stjórn skólastjóra Grunnskóla Drangsness og mun viðkomandi koma að því að móta skólastarfið. 

Gert er ráð fyrir tíma til undirbúnings áður en leikskóli opnar, í samráði við skólastjóra fyrir sumarfrí. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu. 
  • Farsæl reynsla af starfi á leikskóla.
  • Óskað er eftir jákvæðum, sjálfstæðum, ábyrgum og sveigjanlegum einstaklingum.
  • Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að leita og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
  • Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
  • Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.

Að auki er óskað eftir að ráða leikskólakennara í 100% starfshlutfall. Stefnt er að starf byrjar þegar leikskóli hefst að hausti. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi. 
  • Farsæl reynsla af vinnu með börnum.
  • Góðir samskiptahæfileikar.
  • Áhugasamur einstaklingur.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Gott vald á íslensku.
  • Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ. 

Umsóknarfrestur er til og með 2. mars 2026. 

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. 

Umsóknum skal skilað til Ástu Þórisdóttur, skólastjóra Grunnskóla Drangsness á netfangið skoli@drangsnes.is. 

Að auki má senda fyrirspurnir til Ástu í síma 663-5319 eða skoli@drangsnes.is.

Leit