Húsnæðismál, í víðum skilningi, bætt ásýnd og aukin nýting heita vatnsins, eru mikilvægastu viðfangsefni samfélagsins í Kaldrananeshreppi, til að styrkja stöðu byggðarlagsins til framtíðar.
Þannig forgangsröðuðu þátttakendur málefnum á íbúaþingi sem haldið var á Drangsnesi dagana 4. og 5. október, í tilefni þess að þar hefst nú verkefni Byggðastofnunar í svokölluðum Brothættum byggðum.
Heiti verkefnisins, „Jú víst! Kraftur í Kaldrana“, sem valið var á þinginu, endurspeglar þann kraft sem leystist úr læðingi þessa daga, með virkri þátttöku og hugmyndaauðgi íbúa úr þorpi og sveit og á fjölbreyttum aldri.
Brýnt er að auka framboð á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði ásamt rými fyrir sköpun og skrifstofuaðstöðu. Mikill áhugi er á að koma á fót samfélagsaðstöðu fyrir félagsstarf, þar með talið fyrir ungt fólk. Hesthús voru líka mörgum ofarlega í huga.
Bæta mætti ásýnd m.a. með átaki í viðhaldi húsa, listaverkum og góðum leiksvæðum og gjarnan auka skjólbeltaræktun.
Kallað var eftir hitaveituvæðingu víðar í sveitarfélaginu, en nú er og nefndar hugmyndir um sólarorkuver og sjálfbærni. Áhugi er á að bæta aðstöðu við pottana í fjöruborðinu, sem eru orðnir eitt af kennileitum Drangsness.
Íbúar sjá ýmis tækifæri í ferðaþjónustu og þar m.a. horft til heilsutengdrar ferðaþjónustu sem einnig myndi koma íbúum til góða. Jafnframt er áhugi á að sækja fram í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu. Þá var rætt um hvernig mætti efla þekkingu landeigenda um fjölbreytta möguleika til nýtingar á landi og öðrum auðlindum.
Í ríkulegri sögu svæðisins felast verðmæti og fjölmargar hugmyndir um leiðir til að miðla henni, voru ræddar á þinginu.
Huga þarf að ýmsum samgöngubótum og m.a. bæta vetrarþjónustu og merkingar.
Efling samfélagsins, tengsl og inngilding voru þátttakendum ofarlega í huga, til að tengja saman íbúa af öllum þjóðernum, rótgróna jafnt sem aðflutta, þ.m.t. sumarhúsaeigendur.
Fyrir þingið var unnið með börnum í grunnskólanum og aðspurð um hvað er gott við að búa í Kaldrananeshreppi, nefndu þau m.a. náttúru, dýralíf og frelsi og að allir séu vinir. En þau eiga sér m.a. óskir um betri leikaðstöðu og „meira stuð fyrir krakka, fyrir utan skólalóðina“, hærra þjónustustig í verslun og „fleiri hús fyrir fleira fólk“.
Skilaboð íbúaþingsins, sem stýrt var af Sigurborgu Kr. Hannesdóttur hjá ILDI, verða nýtt, ásamt fleiru, við gerð verkefnisáætlunar sem gildir til allt að fimm ára.
Að verkefninu standa, auk Byggðastofnunar, Fjórðungssamband Vestfirðinga / Vestfjarðastofa og Kaldrananeshreppur, ásamt íbúum.
Verkefnisstjóri, Valgeir Jens Guðmundsson, hefur tekið til starfa og er hann starfsmaður Vestfjarðastofu, búsettur á Drangsnesi."

