Á morgun, laugardaginn 14. mars hefjast íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og standa þær til laugardagsins 28. mars. nk.
Kosningar standa frá 12.00 til 14.00 á morgun en hægt verður að kjósa í Félagsheimilinu Árnesi í Árneshreppi & Grunnskóla Drangsness í Kaldrananeshreppi.
Íbúar kjósa í því sveitarfélagi sem þeir eru á kjörskrá í.
Kosningar standa til laugardagsins 28. mars nk. og verður hægt að kjósa á eftirfarandi stöðum á tímabilinu:
Í Árneshreppi:
Skrifstofa Árneshrepps er opin á virkum dögum frá kl. 13:00 til 17:00.
Að auki verður kjörstaður opinn í Félagsheimilinu í Árnesi sem hér segir:
- Laugardaginn 14. mars frá kl. 12:00 – 14:00
- Laugardaginn 28. mars frá kl. 12:00 – 16:00.
Í Kaldrananeshreppi:
Afgreiðsla í þjónustuveri skrifstofu Kaldrananeshrepps
er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 09:00
til 13:00.
Að auki verður kjörstaður opinn í Grunnskóla Drangsness sem hér segir:
- Laugardaginn 14. mars frá kl. 12:00 til 14:00
- Laugardaginn 21. mars frá kl. 12:00 til 14:00
- Laugardaginn 28. mars frá kl. 10:00 til 16:00.
Póstatkvæðagreiðsla
Þeir sem ekki eiga þess kost að mæta á kjörstað geta
greitt atkvæði í póstkosningu á tímabilinu 14. til 28. mars.
Atkvæðagreiðsla með pósti fer þannig fram að kjósandi óskar eftir að fá
kjörgögn ásamt leiðbeiningum um skil send til sín í pósti eða tölvupósti.
Kjósandi þarf svo að koma atkvæði sínu í hendur kjörstjórnar fyrir lokun
kjörstaða kl. 16:00 þann 28. mars nk.
Til að óska eftir kjörgögnum þarf að senda tölvupóst á með nafni og
kennitölu á drangsnes@drangsnes.is.
Sameiginleg kjörstjórn Árneshrepps og Kaldrananeshrepps

