Holtagata 6, Drangsnesi er laus til útleigu

Holtagata 6, Drangsnesi er laus til útleigu

15.05.2024

Til leigu er 94,3 fm, 4 herbergja íbúð í parhúsi við Holtagötu 6 á Drangsnesi. 

Eignin skipist í forstofu með fataskáp, 3 svefnherbergi með fataskápum, opið eldhús með fallegri innréttingu, rúmgóða og bjarta stofu með glugga á 2 vegu og aðgengi út á sólpall. Hátt er til lofts í stofu og eldhúsi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og hefur að geyma sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og góða innréttingu.
Þvottahúsið er flísalagt og þar er til staðar innrétting fyrir þvottavél.
Parket er á gólfum í stofu, eldhúsi og svefnherbergjum á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi eru flísar.
Gólfhiti er í allri íbúðinni og kynt með hitaveitu.  

Frekari upplýsingar má finna á vef Leigufélagsins Bríetar hér

Leit