Fimmtudaginn 26. febrúar fór fram fyrsta úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs Jú víst! Kraftur í kaldrana og var athöfnin haldin í húsnæði Verslunarfélags Drangsness.
Mæting var góð og ríkti þar mikil stemning og frumkvöðlakraftur.
Alls bárust 28 umsókn, þar sem sótt var um rúmar 47 milljónir króna. Heildarkostnaður verkefnanna nemur um 160 milljónum króna.
Að þessu sinni hlutu 19 verkefni styrk, samtals 11.5 milljónir króna, og var styrkþegum óskað innilega til hamingju með þann áfanga!
Valgeir Jens Guðmundsson, verkefnisstjóri, ávarpaði gesti og fór yfir mikilvægi þess að halda hugmyndavinnu áfram. Verkefni samfélagsins væru mörg og margar hendur vinna létt verk sem væri lykillinn að því að þetta tækifæri sem Brothættar byggðir eru fyrir samfélag eins og Kaldrananeshrepp.
Finnur Ólafsson, sveitarstjóri, flutti einnig ávarp og þakkaði fyrir þann kraft sem íbúar sveitarfélagsins hefðu sýnt með þeim fjölda umsókna sem komu inn. Hvatti hann alla til að halda þeirri góðu vinnu áfram og hlakkaði til að sjá allar þær góðu hugmyndir sem hér væru komnar fram verða að veruleika. Óskaði hann jafnframt styrkþegum innilega til hamingju.
Styrkþegar 2026
JKK-2026-01 Galdra- og þjóðsagnaslóð á Ströndum 300.000 kr.
JKK-2026-02 Skíðavél, samstarfshópur SFS 500.000 kr.
JKK-2026-04 Skíðaskotfimisvæði Skíðafélags Strandamanna 400.000 kr.
JKK-2026-06 Þjónustuskýli og upplýsingamiðlun í Bjarnarfirði 750.000 kr.
JKK-2026-07 Hönnun á leik- og útivistarsvæði 800.000 kr.
JKK-2026-08 Business Plan Permavital ehf 400.000 kr.
JKK-2026-09 Líkamsræktarmánuður 100.000 kr.
JKK-2026-10 Norðurljósasund 50.000 kr.
JKK-2026-11 Hestafróðleikur og útreiðarnámskeið 150.000 kr.
JKK-2026-12 Framleiðslueldhús í Samkomuhúsið Baldur 1.500.000 kr.
JKK-2026-13 Íbúabyggð og vinnumiðstöð í Bjarnarfirði 750.000 kr
JKK-2026-15 Bryggjuhátíð á Drangsnesi 2026 500.000 kr.
JKK-2026-16 Uppsetning á Kaffihúsi í V.D 800.000 kr.
JKK-2026-17 Standsetning heitu pottanna 850.000 kr.
JKK-2026-18 Standsetning Búðarinnar V.D. 1.000.000 kr.
JKK-2026-19 Myndskreyting á gámi 200.000 kr.
JKK-2026-21 Segl – útilistaverk á Forvaða 1.600.000 kr.
JKK-2026-24 Vatnsveita í fiskeldi 500.000 kr.
JKK-2026-28 Iðnaðarhúsnæði iðnaðarbil 350.000 kr.
Valgeir endaði úthlutunarathöfnina á því að benda styrkþegum á að hann væri þeim til halds og traust hvort sem það væri til ráðgjafar eða til að aðstoða við að fá utanaðkomandi leiðbeiningar eða fjármagn.
Það þótti við hæfi að halda viðburðinn í Verslunarfélaginu Drangsness því þar mun á næstunni eiga sér stað mikil uppbygging þökk sé styrkjum frá Frumkvæðissjóði JKK. Verður spennandi að sjá afrakstur af því á komandi ári. Sem vonandi verður enn meiri hvatning til þeirra sem eru með hugmyndir um uppbyggingu í Kaldrananeshreppi.
Við óskum öllum styrkþegum hjartanlega til hamingju og hlökkum til að sjá verkefnin blómstra á næstu mánuðum og árum!"

