Fyrirhugað er að halda sveitarstjórnarfund í næstu viku og vill sveitarstjórn Kaldrananeshrepps kanna hvort íbúar og aðrir séu með erindi til afgreiðslu.
Öll erindi sem ætluð eru til afgreiðslu sveitarstjórnar skulu berast á skrifstofu Kaldrananeshrepps.
Einnig er hægt að senda formlega fyrirspurn með tölvupósti á netfangið drangsnes@drangsnes.is.
Erindi þurfa að hafa borist í síðasta lagi fyrir 12:00 á hádegi mánudaginn 26. febrúar ef ætlunin er að fá erindið inn á næsta sveitarstjórnarfund.

