Auglýsing um kjörfund vegna alþingiskosninga 2024

Auglýsing um kjörfund vegna alþingiskosninga 2024

23.11.2024

Kjörfundur vegna alþingiskosninga í Kaldrananeshreppi verður haldinn laugardaginn 30. nóvember 2024. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 18:00. Sérstök athygli er vakin á því að kjörstaður verður opin skemur en í fyrri kosningum.

Kosið verður í Grunnskóla Drangsness Aðalbraut 10, sjá á korti. 

Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi. Kjósendur geta kannað hvar þeir eiga að kjósa á vef Þjóðskrár. Kjörskrá liggur frammi til kjördags í  Búðinni (Verslunarfélag Drangsness) Borgargötu 2 Drangsnesi.

Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað.

Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður í Grunnskóla Drangsness Aðalbraut 10.  Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 867-5986.

Yfirkjörstjórn Kaldrananeshrepps,

Marta Guðrún Jóhannesdóttir, Helga Lovísa Arngrímsdóttir og Einar Unnsteinsson

Leit