Ályktun Kaldrananeshrepps vegna breytinga á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006

Ályktun Kaldrananeshrepps vegna breytinga á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006

08.04.2026

Á 41. sveitarstjórnarfundi Kaldrananeshrepps er haldinn var 1. apríl 2026, var tekin fyrir ályktun Kaldrananeshrepps vegna breytinga á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006. 

 Ályktun sveitarfélagsins hljóðar svo:

Ályktun Kaldrananeshrepps, vegna breytinga á á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006

Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps lýsir yfir þungum áhyggjum af frumvarpi innviðaráðherra um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006, þar sem lagt er til að fella niður línuívilnun og skel- og rækjubætur.

Verði frumvarpið að lögum telur sveitarstjórn að það geti haft grafalvarleg og mögulega óafturkræf áhrif á atvinnulíf og byggð í sveitarfélaginu. Niðurfelling þessara mikilvægu aðgerða setur rekstrargrundvöll heilsársútgerða í verulega hættu, en sjávarútvegsfyrirtæki eru burðarás samfélagsins á Drangsnesi og skorar því sveitarstjórn Kaldrananeshrepps á innviðaráðherra og ríkisstjórnina að falla frá frumvarpinu.

Kaldrananeshreppur er brothætt byggð og hóf nýlega þátttöku í samnefndu verkefni á vegum Byggðastofnunar. Í Kaldrananeshreppi búa um 120 manns og þar af búa rúmlega 75 á Drangsnesi. Fyrirtæki sem reiða sig á þessar aðgerðir standa undir stórum hluta starfa í byggðarlaginu og er því stór hluti útsvarstekna sveitarfélagsins í húfi. Áformin eru þannig til þess fallin að veikja rekstrargrundvöll sveitarfélagsins og þar með samfélagsins í heild. Áhrif frumvarpsins myndu því ná til verulegs hluta íbúa og hafa víðtæk neikvæð áhrif á samfélagið í heild. Aðgerðirnar tryggja starfsemi útgerða og fiskvinnslu í núverandi mynd á svæðinu og telur sveitarstjórn að verði frumvarpið að lögum kemur það til með að hafa gríðarleg neikvæð áhrif á atvinnulíf og setur þar með byggðafestu í Kaldrananeshreppi í hættu.

Sveitarstjórn telur að fyrirhugaðar breytingar gangi þvert gegn yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um að efla byggð í dreifðum sjávarbyggðum landsins. Línuívilnun og skel- og rækjubætur hafa dregist saman á undanförnum árum og myndi niðurfelling þeirra vera áfall, jafnvel rothögg, fyrir starfsemi margra fyrirtækja í sveitarfélaginu.

Með hliðsjón af framangreindu skorar sveitarstjórn Kaldrananeshrepps á innviðaráðherra og ríkisstjórnina að falla frá frumvarpinu. Jafnframt leggur sveitarstjórn áherslu á að haft verði raunverulegt samráð við sveitarfélög og hagaðila í sjávarútvegi um allt land, með það að markmiði að tryggja stöðugleika, efla heilsárs atvinnustarfsemi og styrkja byggðafestu í viðkvæmustu sjávarbyggðum landsins.

Leit