Álagningaseðlar fasteignagjalda 2025 verða aðgengilegir á island.is innan tveggja daga.
Álagning fasteignagjalda er reiknuð út frá fasteignamati húss og lóðar. Á seðlunum koma fram fjárhæðir fasteignaskatts, lóðarleigu, vatnsgjalds og fráveitugjalds auk sorphirðugjalds.
Hvernig nálgast ég Álagningarseðilinn minn?
1. Ferð inná www.island.is
2. Skráir þig inn á "mínar síður"
3. Smellir á "Pósthólf - er bréf til þín?"
4. Þar er smellt á "Álagningarseðill fasteignagjalda 2025" sem er að finna þar í listanum.
5. Þar er hægt að hlaða álagningarseðli niður sem pdf eða prenta hann út.
Ef einhver vandamál koma upp er hægt að leita til skrifstofu Kaldrananeshrepps og senda tölvupóst á netfangið drangsnes@drangsnes.is.

