Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps hefur samþykkt að vinna aðalskipulagsbreytingu sem tekur til frístundabyggðar á Skarði í Bjarnarfirði (FS9) annars vegar og hins vegar til stækkunar íbúðarsvæðis í þéttbýlinu á Drangsnesi, vegna fjölgunar íbúðarlóða við Vitaveg.
Samhliða aðalskipulagsbreytingunum verður unnið deiliskipulag fyrir frístundabyggðina á Skarði og deiliskipulag fyrir Vitaveg.
Sveitarstjórn samþykkti á fundum 16. apríl og 26. maí 2024 að kynna vinnslutillögur sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Vinnslutillagan – greinargerð ásamt aðalskipulagsuppdráttum - er aðgengileg í Skipulagsgátt á slóðinni https://skipulagsgatt.is/issues/2024/180
Allir sem hafa athugasemdir og ábendingar um vinnslutillöguna að geta skilað þeim skriflega fyrir 5. júlí 2024 í gengum skipulagsgáttina.

