- Details
-
Sunnudagur, 14 september 2008 08:47

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða fyrir veturinn 2008 - 2009 er kominn út. Hann hefur verið settur á heimasíðu Fræðslumiðstöðvarinnar www.frmst.is
og verður honum dreift í öll hús á Vestfjörðum næstu daga.
Framboð námskeiða hefur aldrei verið meira en í vetur. Í bæklingnum eru
kynnt 66 námskeið eða námsleiðir sem haldin verða víðs vegar um
Vestfirði. Auk þess mun Fræðslumiðstöðin setja upp fleiri námskeið
eftir því sem óskir berast um. Starfsemi miðstöðvarinnar hefur aukist
ár frá ári og mun vaxa enn frekar á komandi starfsári. Eftir
stefnumótunarvinnu sem farið var í á vormisseri má segja að
Fræðslumiðstöð Vestfjarða sé í útrás. Í vor voru María Ragnarsdóttir á
Patreksfirði, Dagný Sveinbjörnsdóttir á Ísafirði og Kristín Sigurrós
Einarsdóttir á Hólmavík ráðnar í fast starf sem verkefnastjórar. Þá
hafa Fræðslumiðstöðin og Menntaskólinn á Ísafirði eflt samstarf sitt og
munu meðal annars vinna saman að eflingu fjarkennslu. Guðjón Torfi
Sigurðsson og María Ragnarsdóttir munu stýra því verkefni.
Fræðslumiðstöðin hefur eflt náms- og starfsráðgjöf meðal annars með
sérstökum fjárveitingum til mótvægisaðgerða og mun jafnhliða þróa
svokallað raunfærnimat, þar sem markmiðið er að meta reynslu og
kunnáttu fólks inn í skólakerfið eða á vinnumarkaði.
Verkefnin hafa því aldrei verið fleiri og með nýja og skýra
framtíðarsýn að leiðarljósi hefur Fræðslumiðstöðin blásið til sóknar í
fullorðinsfræðslu á Vestfjörðum.