Dagskrá Bryggjuhátíðar 2008

Nú er farið að styttast í Bryggjuhátíð á Drangsnesi. Vinnukvöld á hverju
kvöldi og mikið gaman þó auðvitað sé pínulítið stess því allir vilja að allt
sé orðið fínt þegar hátíðin gengur í garð.

 


Fyrstu Bryggjuhátíðar gestir eru mættir á svæðið. Vilja mæta snemma til að geta verið með í undirbúningnum. Dagskrá Bryggjuhátíðar er komin á prent þó geta tímasetningar eitthvað breyst eins og önnur mannanna verk. Hér eru nokkrar myndir af stemmingunni í fyrra.
bryggjuh4bryggjuh3
 Dagskrá Bryggjuhátíðar 19.7.2008             

10:00 Dorgveiði - Fuglahræðukeppni - Grímseyjarsiglingar
11:30 Sýning á björgunartækinu neyðarnótinni á bryggjunni
12:30 Sjávarréttasmakk við Fiskvinnsluna við harmonikku undirleik Kristjáns Magnússonar   
Kynning á muurikki gaspönnunni.
13:00 Grásleppusýning - Ari Jónsson syngur við Fiskvinnsluna
13:00 Myndlista- og ljósmyndasýningar
13:00 Kaffihúsið í skólanum
15:00 Vináttulandsleikur í fótbolta, Drangsnes—Hólmavík
16:30 Söngvarakeppni - Munið að skrá ykkur!
18-20.00 Grillveisla    
20:30 Kvöldskemmtun í Baldri
22:00 Varðeldur  
23:30 Dansleikur með hljómsveitinni Kokteill.

ATH Tímasetningar geta breyst og svo fer að styttast í lok skráningar fyrirfuglahræðukeppnina.

Jenný