Hamingjudagar 2009

hamingjud_2Bæjarhátíðin Hamingjudagar á Hólmavík verður haldin í fimmta sinn dagana 2.-5. Júlí næstkomandi. Á Hamingjudögum er lögð áhersla á fjölskylduvæna afþreyingu í fallegu umhverfi í Strandabyggð. Tónlist hefur frá upphafi sett mikinn svip á hátíðina. Að þessu sinni verða m.a. þrennir tónleikar, með  Svavari Knúti, Árstíðum og Helga Val á fimmtudagskvöldi, Gunnarði Þórðarsyni á föstudagskvöldi  og KK og Magga Eiríks á laugardagskvöldi. Hamingjudansleikurinn í ár verður með hljómsveitinni Von frá Sauðárkróki. Þá verður útiskemmtun þar sem heimamenn standa fyrir veglegri dagskrá ásamt Felix Bergssyni sem kynnir dagskrána og skemmtir börnum á öllum aldri. Einnig munu kraftakeppnin Vestfjarðavíkingurinn, Furðuleikar í Sævangi, Tómas Ponzi teiknari og Hrönn spámiðill setja svip á hátíðina. Á Hamingjudögum er líka ávallt fjölbreytt afþreying í boði, svo sem lasertag, sjóstangveiði, golf, mótorkross, gönguferðir, hestaferðir og árlegt kassabílarallý.  Á Hólmavík eru vel útbúin og skjólgóð tjaldsvæði, við hliðina á glæsilegri sundlaug staðarins.
Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á strandabyggd.is/hamingjudagar og This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
hamingjud_1