Mikill framkvæmdahugur á Drangsnesi

asbjorn_kynnirGistirými á Drangsnesi ríflega tvöfaldast í sumar þegar nýja gistihúsið að Grundargötu 17 tekur til starfa. Hjónin Valgerður Magnúsdóttir og Ásbjörn Magnússon sem reka gistihúsið Malarhorn á Drangsnesi og kaffihúsið Malarkaffi ætla að byggja nýtt gistihús í sumar. Var íbúum boðið til kynningar á kaffihúsið Malarkaffi vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Og fylgdi kynningunni kaffi og nýbakaðar vöfflur með rjóma.
 

Nýja húsið er rúmlega 200 fermetra bjálkahús frá Eistlandi með tíu tveggja manna herbergjum og á það að verða tilbúið í sumar. Öll verða herbergin með baði og sér inngangi.  Sýndu þau teikningar af húsinu og umhverfi þess. Verður það allt hið glæsilegasta. Auk þess að reka gistihús og kaffihús hafa þau gert út bátinn Sundhana til siglinga og sjóstangaveiði í mörg ár en nú munu þau hafa áhuga á að auka þjónustuna og  bjóða upp á hvalaskoðunarferðir og þá er bara að auka gistirýmið. Mikil aukning hefur verið á ferðamönnum sem koma gagngert til landsins í hvalaskoðun og vilja geta sinnt þessu áhugamáli sínu um land allt. Það eru yfirleitt alltaf einhverjir hvalir í Steingrímsfirðinum svo ekki ættu gestir þeirra Valgerðar og Ásbjörns að verða fyrir vonbrigðum.

teikning1

teikning2