Sleðakappar á Trékyllisheiði

eftirleitir_1Nokkrir sleðakappar, Ingólfur Árni, Sölvi Þór, Steinar Þór, Smári Vals, Atli Sigurðsson og Örvar Ólafsson fóru á snjósleðum fram Trékyllisheiði að gá að kindum sem var vitað um að voru þarna frá því í haust.

Þær höfðu sloppið nokkrum sinnum hjá okkur og höfðu stokkið í Hestaklifagil sem var foráttu mikið og drepið undan sér tvö lömb. Svo villtar voru þessar ungu kindur að menn treystu sér ekki á eftir þeim. En núna 29/12 fundust þær upp á brúninni fyrir ofan Hestaklifurgil eða fyrir ofan Illviðrishnjúk og stóðu í einum hnapp átta stykki, fjórar ær og fjögur lömb, en ein lamblaus ær var frá Bæ í Árneshreppi og hitt allt frá Odda. Steinar Þór fór á eftir þeim niður Goðdalinn en sleðamennirnir urðu að snúa við til baka sömu leið og þeir komu vegna snjóleysis. Á leiðinni til baka kviknaði í sleðanum hans Atla en það tókst að slökkva eldinn fljótt og vel með snjó svo að lítið skemmdist. En ég, Árni Þór, Helga og Haraldur fórum fram í Goðdal á móti Steinari Þóri. Guðbrandur frá Bassastöðum og Björn tengdasonur hans voru líka með í för. Ingi, Birna og Alda frá Kaldrananesi komu að hjálpa okkur að ná kindunum og gekk það vel enda orðnar þreyttar og móðar eftir þessa löngu göngu. Ég vil þakka öllum sem hjálpuðu okkur að ná þessum kindum bæði sleðamönnum og öðrum. Fólk getur skoðað myndir af ferðinni fram Trékyllisheiði á www.123.is/strandatrollin.
Ég óska öllum ættingjum, vinum og Strandamönnum gleðilegs nýs árs.
  Bið að heilsa
  Árni Þór Baldursson, Odda.

eftirleitir_2

 

Sölvi Þór með gulu húfuna og Steinar Þór með rauðu húfuna Baldursynir frá Odda